Prófíll

  • Nafn: Karen Lind Guðmundsdóttir
  • Netfang: karen_svarta@hotmail.com
  • Atvinna: Skólinn
  • Hjúskaparstaða: Á lausu
  • Um mig: Ég er 19 ára stelpa sem býr í súðavík, er útskrifaður Tækniteiknari og er svo að fara í stúdentinn. Er að vinna á Ömmu Habbý og unni mér vel þar.

Auglýsing

Könnun

Á að skemmta sér um páskana?

Klukkan

Innskráningar kubbur

Páskar.

31. mars 2009 klukkan 14:35
Nú styttist óðum í páskana og Aldrei fór ég suður! Hlakka ekkert smá til Smile Ásta er að koma vestur á Laugardaginn og er ég nú orðin mjög spennt að sjá hana "stóru" systir Tongue out
Fór á ball með Pál Óskari á laugardaginn og var það bara mjög gaman, byrjaði í Sigurðarbúð með Söndru og Höllu og svo bara beint á Edin. Palli lagði ýmislegt á sig til að koma vestur til okkar, það var náttla ekki flogið vegna veðurs þannig hann kom bara keyrandi kallinn! og var bara frekar hress eftir alla þessa keyrslu Smile
Nú eru Pabbi og Arthúr búnir að kaupa sér snjósleða þannig maður getur alltaf skellt sér á sleða þegar það er búið að snjóa svona eins og hefur gert núna síðustu daga Smile (Elísabet hint* hint*)
Pabbi og Óli eru á fullu í húsinu þannig það gengur bara vel með það, þó það vanti nú sitt og hvað sem kom vitlaust! Yell En þar til næst.

Kv.Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir

febrúar-mars.

13. mars 2009 klukkan 14:30

Þessi síða er nú orðin alltof léleg hjá mér! verð að fara gera eitthvað í þessu.
Ég er bara í sveitinni að hjálpa pabba í viðbyggingunni og fæ stundum vinnu á Ömmu Habbý, vona að ég fari að fá meiri vinnu þar. Natalía mín er búin að vera veik núna með einhverja veiru í munninum Frown
Fór á seinustu helgi á grímuball KFÍ og var það bara mjög gaman, byrjaði í partý hjá Söndru svo fórum við í krúsina, getið skoðað myndir á facebook.
Árný Fjóla varð 1 árs 7.mars tíminn er alltof fljótur að líða! finnst bara eins og hún hafi fæðst í síðasta mán eða eikkað!

Hef nú ekkert mikið meira til að segja frá þannig þar til næst.

Kv.Karen

Karen Lind Guðmundsdóttir

Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár!

02. janúar 2009 klukkan 00:35
Þá er bara loksins komin árið 2009! Hef á tilfinningunni að það eigi eftir að vera gott ár, það eina sem ég óska mér er að þetta kreppu mál fari nú að lagast eitthvað!!
Nú er ég bara alveg flutt heim og er það frekar niceCool hjóla og svona þegar ég get.
Fór á ball í gær í félagsheimilinu og var mikið stuð þar, fór með Betu minni;) svo var svona smá partý hjá henni eftir ballið og vorum við nokkur sem fórum þangaðLaughing
Er ég þokkalega ánægð með einkannirnar mínar og mun ég útskrifast í vor og get ekki beðið eftir að fá þessa rauðu húfu!
á enn eftir að finna mér vinnu en er ekkert að stressa mig útaf því, þetta reddast allt.
jæja ætla ekkert að hafa þetta lengra.

Kv.Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir

Helgin...

02. nóvember 2008 klukkan 20:00
Jæja ég er nú vel þreytt eftir helgina! Fór á fimmtudag í bíó með Elísubet og ástrós á sex drive, hún er allt í lagi en hélt að hún væri betri. Svo á föst þá fór ég,Elísabet,Jónas og Ástrún á players á Sálina sem var fínt bara svo mikið af fólki! hitti Kareni og svona.Laughing
Svo í gær þá vorum við bara hér heima og komu Ásta og Óli svo komu Örn og félagar og Danni frændi og var mikið stuð þannig við fórum ekert niður í bæ, bara fínt að njóta sín heimaLaughing En greyið Ásta hún varð bara rosa veik og ég vorkenndi henni ekkert smá!
Svo er eg bara búin að vera í búðarápi með Elísubet og fer hún kannski heim á morgunCry
Annars er ekki mikið að frétta annað en ég ætla að fara að setja myndir inn af helginni, skemmtið ykkur við að skoðaLaughing

Kv.Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir

Kannski kominn tími á blogg...

24. október 2008 klukkan 21:34
Jæja komið soldið langt á milli blogga.
Það er alveg eitthvað í fréttum núna, ég er orðin single aftur og bý núna hjá Stínu frænku. Flyt samt vestur fyrir jól og fæ að taka í fjarnámi það sem ég á eftir sem er ekki mikið bara raflagnateikning og svo stæ 202. Tek stæ bara á ísó. Það verður bara sott að komast aftur í mömmukot.
Það er bara brjálað veður fyrir vestan nuna, einhver lægð að fara yfir.
Mamma og pabbi endalust að skera kjöt og er mamma komin með ógeð af kjöti þannig það verður ekkert svoleiðis í matinn hja þeim á næstunni.
Stelpurnar mínar bara búnar að vera veikar, Með hita, kvefaðar og með í hálsinum, greyin. Hera alltaf að spyrja hvenær ég komi aftur og það er ekki svo langt í það, ef próftaflan mun ekki breytast þá er síðasta prófið 1.des og ætla ég að reyna að fara bara strax eftir það ef það verður ekki leiðnlegt veður.Undecided
Fyndið að sjá hvernig margir hér í bænum bregðast við smá snjó! þegar það kemur smá snjór þá er bara allt á "kafi", hef nú séð það verra.Wink
Hef nú ekki frá neinu fleira að segja þannig þar til næst.

Kv. Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir

Langt um liðið...

02. september 2008 klukkan 19:39
Já það er nú svolítið langt um liðið frá síðasta bloggi...
Er komin í bæinn og byrjuð í skólanum á fullu, ekki sátt við breytingarnar á stundatöflunni... Er nú í skólanum til 6 í staðinn fyrir 5! Og alltaf 5 mín pásur á 40 mín fresti! hefur varla tíma til neins á 5 mín.
Og nú styttist óðum í New York aðeins hva 59 dagar...Svalur Eins gott að byrja að sparaGráðugur
Er búin að sækja um vinnu í íshestum og vona svo innilega að ég fái þá vinnu, dauðlangar að vinna með hestana og læra eitthvað.Ullandi Er svo kannski að fara á reiðnámskeið. Vona að ég hafi tíma og penginga.
Ekki sátt við að það er ekkert frí í skólanum fyrren á jólunum. langar vestur fyrr.
Natalía mín er byrjuð í skólanum og er ég hálfpartinn í sjokki yfir þv,í vildi að hún væri enn bara 2-3 var ekkert smá skemmtileg á þeim aldri (þó hún sé alveg skemmtileg núna) Hera byrjuð í samkennslu eða er að fara að byrja. Þegar maður tekur svona mikinn part í lífi barna þá sér maður sko hvað tíminn flýgur!
Langar svo rosalega að kaupa mér folald, getið séð það í myndunum. Ekkert smá flottur. Ef þið fáið hugmyndir af nöfnum á hann endilega commenta. Elísabet er að pæla að taka tvö og eru líka myndir af þeim.
En veit nú ekki hvað ég get bloggað meira um...

Kv.Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir

Margt og mikið

16. júní 2008 klukkan 21:25
Jæja Komin vestur og búin að fara til DK og Arthúr búinn að fermast.

Fórum til DK 4.júní og vorum í 4 daga fórum á Celine Dion tónleika og verslað og skemmt sér í þessum steikjandi hita! Var 25° tvo seinustu dagana! Alltof heitt fyrir mig. Verslaði kjól og tvo boli var nú ekki að tíma að kaupa mikið meira þar sem það var nú ekki ódýrara að versla í Dk en hér á Íslandi.
Tónleikarnir voru alveg æði! sé ekki eftir 7þús kallinum sem fór í þann miða.

Pabbi átti afmæli síðasta fimmtudag og er kallinn orðinn 49 ára bara stór afmæli á næsta ári.
Svo var fermingin hans Arthúrs síðasta laugardag og fékk drengurinn rafmagnsgítar frá okkur systrum og mökum og Pening uppá 360þús!! Nú langar mig að fermast aftur.

Teitur ætlatr að koma til mín í næsta mánuði pg get ég ekki beðið eftir því soldið leiðinlegt að vera svona í burtu frá hvort öðru í allt sumar
Erum búin að breyta ferðinni til NY ætlum að fara 31.okt-5.nóv. Var of stutt að hafa mánuð á milli svo er þetta góður tími þá getum við verslað einhverjar jólagjafir.

Kv.Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir

Langt um liðið...

06. maí 2008 klukkan 19:20
Það er nú allt of langt liðið frá síðasta almennilegu bloggi.
Nú eru prófin bara byrjuð á fullu! Búin með 3/7 svo tvö á morgun og eitt á fimmtudag og svo síðasta miðvikudaginn í næstu viku. Vona að allt fari vel í þeim málum.
Þannig ég er alveg að koma vestur!! Kem 22.mai hlakka nú til að koma í sveitasæluna en væri betra ef Teitur gæti verið hjá mér.
En fyrsta stopp verður nú stutt því ég er að fara til DK 3.júní og svo förum við Teitur saman til New York 4.júlí(Þjóðhátíðardaginn)!!Svalur Verðum í eina viku eða 6 nætur. Allt of mikið sem við erum búin að ákveða að skoða. Efa að við komumst yfir það allt saman.
Get ekki beðið eftir að vera búin með þetta nám, vona að ég fái vinnu á stofu strax og það er búið. Fá smá æfingu áður en við förum út og kem þá til baka sem ARKITEKTGlottandi
Hugsaði samt um daginn að ég væri svo til í að geta alltaf fengið að vinna úti á sumrin, er ekki spennt fyrir að þurfa að sitja inni yfir tölvum allan daginn og horfa á sólina úti.
Það eru komin 11 lömb heima, aðeins of stór segir pabbi þannig greyið þær rollur sem eru eftir. Man í fyrra þegar ég var á nætuvaktinni og Teitur var með mér, það var ein rolla sem var búin að vera svoldið mjög lengi þannig ég ákvað að hjálpa henni og nei nei lambið pikkfast. Teitur hélt rollunni meðan ég reyndi með kremi og öllu sem pabbi á. En sá að það gekk ekkert svo ég hljóp inn og náði í pabba og hann kom út. Vorkenndi svo greyið rollunni að heyra í henniFýldur En þegar pabbi loksins náði lambinu þá var rollan komin næstum 2 metra frá Garðanum(Grindinni) og vegna þess hvað lambið var stórt og illa gekk þá dó það og ég segi það að þetta var ekkert smá stórt lamb! Vona að ég þurfi ekki að sjá aðra rollu þjást svona.
En held að þetta sé bara komið gott. ætti að fara að læra eitthvað fyrir Innréttingateikningu og Kortateikningu.Gráta

Kv.Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir

Trémaðurinn.

18. apríl 2008 klukkan 11:12
Greyið kallinn.. hvernig ætli það sé að lifa svona...?

http://doctore.blog.is/blog/doctore/entry/365288/

Skoðið
Karen Lind Guðmundsdóttir

Jæja já

17. mars 2008 klukkan 20:05
Já það er nú nokkuð langt frá seinasta bloggi, en það er nú nokkuð búið að gerast. Bæði ég og Teitur áttum afmæli í feb. Öll familian fór til Kanarý nema ég og Ásta.
Svo er núna búið að panta DK ferðina, erum að fara á Celine Dion tónleika í Júni. Næstum öll ættin.
Svo er bara komið páskafrí í skólanum en ég er bara að vinna fram á miðvikudag, fer þá vestur með Ásru og Óla. Verðum fram á mán eða þriðjudag. Margt að gerast fyrir vestan "aldrei fór ég suður" hátíðin sem verður pottþétt kíkt á.
Svo verður bara best að vera aðeins heima og kíkja í pottinn og svona ;)
Jæja hef þetta bara stutt og laggott núna.

Kv.Karen
Karen Lind Guðmundsdóttir